Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Sólveig Birna H. Elísabetardóttir, nemandi við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, hefur á undanförnum tveimur árum tekið virkan þátt í hagsmunabaráttu stúdenta sem fulltrúi í fulltrúaráði Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS).
Um síðustu helgi fór fram Landsþing LÍS í Háskólanum á Akureyri þar sem stúdentar alls staðar að af landinu komu saman til að ræða sameiginleg hagsmunamál og framtíð háskólasamfélagsins.
Sólveig Birna hefur jafnframt verið virk í starfi innan Háskólans á Hólum, þar sem hún situr í ýmsum ráðum og nefndum sem fulltrúi stúdenta.
„Það hefur verið afar ánægjulegt og lærdómsríkt að vera fulltrúi frá Stúdentafélagi Hólaskóla í LÍS síðustu tvö ár. Ég kynntist samtökunum þó fyrst fyrir um sex árum síðan þegar ég var í Háskólanum á Akureyri og tók síðar sæti í fulltrúaráði fyrir hönd SHA. Þegar vantaði fulltrúa frá Hólaskóla ákvað ég að slá til, enda hafði ég þegar öðlast góða þekkingu og reynslu af starfi samtakanna,“ segir Sólveig Birna.
„LÍS eru ótrúlega mikilvæg samtök, sérstaklega fyrir stúdenta í Hólaskóla þar sem við erum fá. Það skiptir því miklu máli að hafa öflug samtök sem tala fyrir hönd háskólanema, bæði innanlands og þeirra sem stunda nám erlendis.“
Á starfstíma sínum tók hún þátt í fjölbreyttum verkefnum og umræðu um málefni stúdenta, þar á meðal tengd námslánakerfinu og stöðu nemenda.
„Á þessum tveimur árum hefur ýmislegt verið í gangi. LÍS hefur meðal annars rannsakað áhrif nýs námslánakerfis í samstarfi við BHM og lagt áherslu á að endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sé í forgangi.“
Reynslan hefur styrkt sýn hennar á mikilvægi þátttöku nemenda í ákvörðunum sem snerta þá.
„Eftir setu mína í LÍS áttaði ég mig á því hversu mikilvægt það er að stúdentar hafi rödd og fái að taka þátt í ákvörðunum sem snerta þá, til dæmis um háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands. ‘Ekkert um stúdenta án þeirra.’“
Háskólinn á Hólum óskar Sólveigu Birnu til hamingju með vel unnin störf og þakkar henni fyrir hennar framlag til hagsmunamála stúdenta.
