Nemendaþing Háskólans á Hólum 23. mars

Nemendaþing Háskólans á Hólum verður haldið mánudaginn 23. mars kl. 17:30 og er öllum nemendum skólans boðið að taka þátt. Þingið er haldið í tengslum við áframhaldandi stefnumótunarvinnu fyrir Háskólann á Hólum innan háskólasamstæðunnar og er mikilvægt tækifæri fyrir nemendur til að láta rödd sína heyrast.

Á þinginu verður rætt um framtíðarsýn skólans, hvaða áherslur nemendur telja mikilvægar fyrir þróun hans og hvernig best sé að byggja upp sterkt og framsækið námsumhverfi til framtíðar. Markmið þingsins er að safna sjónarmiðum og hugmyndum nemenda sem geta nýst í áframhaldandi vinnu við mótun stefnu skólans.

Nemendaþingið verður haldið bæði á staðnum og í fjarfundi, þannig að sem flestir nemendur geti tekið þátt óháð staðsetningu. Nemendur eru hvattir til að mæta, taka þátt í umræðunni og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Jafnframt er bent á nýja upplýsingasíðu um háskólasamstæðuna, þar sem finna má helstu upplýsingar um verkefnið, spurt og svarað og aðrar gagnlegar upplýsingar. Nemendur eru hvattir til að kynna sér efnið og láta vita ef þeir telja að upplýsingar vanti eða ef þeir hafa ábendingar.

Við hvetjum alla nemendur til að taka þátt í nemendaþinginu og leggja sitt af mörkum til umræðu um framtíð Háskólans á Hólum.