Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Rannsóknastarf við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum heldur áfram að skila öflugum árangri og á fyrstu mánuðum ársins 2026 hafa þrjár nýjar ritrýndar vísindagreinar bæst við.
Fyrr á árinu var sagt frá fyrstu vísindagrein Gabrielle Ladurée, doktorsnema við deildina, sem markaði mikilvægan áfanga í doktorsverkefni hennar. Nú hafa fleiri rannsóknir bæst í hópinn sem sýna vel breidd og styrk rannsóknastarfsins á Hólum. skoða frétt á vef deildarinnar
Dr. Alessandra Schnider, sem lauk doktorsprófi í líffræði árið 2025, birti nýverið sína fyrstu grein sem fyrsti höfundur í tímaritinu Aquatic Ecology. Þar er fjallað um fæðuval og líkamsbyggingu seiða hornsílunga og hvernig þessi einkenni breytast eftir búsvæðum og stærð. Rannsóknin varpar ljósi á aðlögunarhæfni tegundarinnar að ólíkum aðstæðum í náttúrunni. Hægt að skoða grein hér, Juvenile feeding ecology of threespine stickleback (Gasterosteus aculeatus)
Dr. Grant Haines, sem starfaði sem nýdoktor við Háskólann á Hólum á árunum 2023–2025, birti nýlega rannsókn þar sem skoðað er hvernig veðurfar og landslag hafa áhrif á hitafar tjarna á norðlægum slóðum. Niðurstöðurnar sýna að jafnvel tjarnir sem liggja mjög nálægt hver annarri geta haft ólíkar aðstæður, sem getur haft áhrif á bleikjustofna og lífsskilyrði þeirra. Hægt að skoða grein hér, Weather and catchment morphology drive thermal regime variation among subarctic ponds, and possible effects on resident Arctic charr
Þá tók prófessor Camille Leblanc þátt í alþjóðlegri úttekt á stöðu og þörfum rannsókna á líffræðilegri fjölbreytni í ferskvatni á norðurslóðum. Greinin, sem birt var í tímaritinu Ambio, dregur fram helstu þekkingargöt og mikilvægar rannsóknaráherslur til framtíðar. hægt er að skoða grein hér, Freshwater biodiversity in a rapidly changing Arctic: An expert horizon scan of key research questions
Þessar nýju birtingar endurspegla vel það öfluga rannsóknastarf sem fer fram á Hólum, þar sem nemendur og starfsfólk vinna saman að því að auka þekkingu á vistkerfum ferskvatns og styðja við sjálfbæra nýtingu auðlinda.
👉 Hægt er að lesa nánar um greinarnar á vef deildarinnar: new-articles