Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Við Hestafræðideild Háskólans á Hólum hefur nýlega verið tekið í notkun nýstárlegt kennslutæki, svokallaður knapaþjálfunarstóll, sem líkir eftir setu knapa á hesti og býður upp á nýjar leiðir til þjálfunar.
Stóllinn er tengdur við tölvu og skynjara sem greina hreyfingar notanda stólsins. Með því að stilla næmni hans er hægt að auka eða minnka áskorunina, þannig að hann reynir á jafnvægi og stjórn knapans með markvissum hætti.
Á skjá fyrir framan notandann birtist jafnvægispunktur í rauntíma, sem gerir nemendum kleift að fylgjast með stöðu sinni og æfa sig í að færa eða halda jafnvægi. Í tölvunni eru einnig sérstök æfingaprógrömm þar sem notendur þurfa að stýra jafnvægispunktinum eftir ákveðnum mynstrum. Slíkar æfingar líkja eftir samskiptum knapa og hests í gegnum sætið og hjálpa til við að þróa næmni og nákvæmni í ásetu knapans.
Einn af helstu kostum tækisins er að nemendur geta á sama tíma séð sjálfa sig bæði aftan frá og frá hlið, sem gefur skýra mynd af líkamsbeitingu og stöðu. Með því geta þeir leiðrétt sig í rauntíma eða skoðað upptökur til að bæta tækni sína enn frekar.
Með jafnvægisstólnum fá nemendur tækifæri til að þróa betri stjórn úr sæti, sem er lykilatriði í góðri reiðmennsku. Slík þjálfun stuðlar að léttari og nákvæmari samskiptum við hestinn og eykur þannig bæði árangur og velferð hans.
Tækið er því mikilvæg viðbót við kennslu og þjálfun á Hólum og styrkir enn frekar þá áherslu sem lögð er á fagmennsku og nákvæmni í reiðmennsku.