Nýtt BS-nám í lagareldi

Myndataka Jóndís Hinriks
Myndataka Jóndís Hinriks

Háskólinn á Hólum og Háskólinn á Akureyri hafa tekið höndum saman um þróun nýrrar námsleiðar á sviði lagareldis. Samningur um samstarfið var undirritaður af Hólmfríði Sveinsdóttur, rektor Háskólans á Hólum, og Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor Háskólans á Akureyri. Með samningnum er lagður grunnur að öflugu samstarfi háskólanna tveggja á sviði kennslu, rannsókna og uppbyggingu þekkingar.

Lagareldi hefur á undanförnum árum þróast hratt og gegnir sífellt stærra hlutverki í matvælaframleiðslu og nýtingu náttúruauðlinda. Samhliða þessari þróun hefur þörfin fyrir vel menntað fagfólk aukist verulega. Með nýju BS-námi í lagareldi er stefnt að því að mæta þeirri þörf með menntun sem sameinar fræðilega þekkingu og hagnýta færni.

Námið verður þriggja ára BS-nám (180 ECTS) og mun nýtast nemendum sem vilja starfa á sviði fiskeldis, vatnalíffræði og tengdra greina. Í náminu verður lögð áhersla á líffræði og vistfræði vatnalífvera, umhverfismál, tækni og rekstur í fiskeldi, auk sjálfbærrar nýtingar vatnaauðlinda. Námið byggir á styrkleikum beggja háskóla og gefur nemendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum fræðilegum og hagnýtum þáttum greinarinnar.

Kennsla mun fara fram við Háskólann á Hólum og Háskólann á Akureyri, þar sem nemendur njóta sérþekkingar og aðstöðu beggja skóla. Með þessu samstarfi skapast öflugt námsumhverfi þar sem fræðileg þekking, rannsóknir og tengsl við atvinnulíf fléttast saman.

„Þetta samstarf er mikilvægt skref í að efla menntun og rannsóknir á sviði fiskeldis og vatnalíffræði á Íslandi,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. „Með sameiginlegu átaki háskólanna getum við byggt upp öflugt og framsækið nám sem styður við áframhaldandi þróun greinarinnar og skapar ný tækifæri fyrir nemendur.“

Samstarfið endurspeglar einnig vilja beggja háskóla til að efla menntun og rannsóknir með því að nýta sameiginlega styrkleika og skapa ný tækifæri fyrir nemendur og samfélagið. Með þessari nýju námsleið er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni uppbyggingu þekkingar á sviði lagareldis og sjálfbærrar nýtingar vatnalífríkis, sem hefur sívaxandi þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag.

Hér er hægt að skoða námsleiðina Lagareldi BS-nám | Háskólinn á Hólum

 

Nám í Lagareldi verður í boði næsta haust | Háskólinn á Akureyri