Ráðstefna í Eddu 30. maí um skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs

Verið velkomin á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnu Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) sem haldin verður í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 30. maí 2025. Þar verður fjallað um áhrif menningar og skapandi greina á samfélags- og efnahagslega nýsköpun í landsbyggðum. Varpað verður ljósi á mikilvægi frumkvöðla og staðbundna þróun til að stuðla að sjálfbærni og þrautseigju í jaðarbyggðum.

RSG stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Árnastofnun og rannsóknarverkefnið IN SITU sem er styrkt af Horizon Europe og fjallar um áhrif menningar og skapandi greina á svæðisbundna nýsköpun í landsbyggðum.

Ráðstefnan fer fram á ensku en einnig í streymi á Facebook-viðburði ráðstefnunnar.
Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudagskvöld 27. maí.

 

Dagskrá og skráning