Rannsóknasetur skapandi greina fær áframhaldandi stuðning til næstu þriggja ára

Rannsóknasetur skapandi greina og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafa endurnýjað samning um áframhaldandi uppbyggingu og starfsemi Rannsóknaseturs skapandi greina til næstu þriggja ára.

Markmið samningsins er að efla rannsóknir og byggja upp þekkingu á atvinnulífi menningar og skapandi greina, með áherslu á aukið samstarf, gagnaöflun, greiningar, samfélagsleg áhrif og miðlun til almennings, stjórnvalda og hagaðila. Sérstök áhersla verður einnig lögð á þróun mælaborðs skapandi greina.

Erla Rún, sem stýrir setrinu, gerði grein fyrir blómlegri starfsemi þess við þetta tækifæri og greindi frá þeim fjölmörgu verkefnum sem eru á döfinni.

Háskólinn á Bifröst annast umsýslu Rannsóknaseturs skapandi greina, en að því standa einnig Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Listaháskóli Íslands.

Myndatexti:
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina, við endurnýjun samningsins.