Reiðsýning brautskráningarnema

Brautskráningarnemar. Ljósmynd/ Árni Rúnar Hrólfsson
Brautskráningarnemar. Ljósmynd/ Árni Rúnar Hrólfsson

Brautskráningarnemar til BS-prófs í reiðmennsku og reiðkennslu luku námi sínu við skólann nú um hvítasunnuhelgina. Þetta gerðu þeir annars vegar með með þátttöku í árlegu Hólamóti í hestaíþróttum og hins vegar með glæsilegri reiðsýningu á aðalreiðvelli skólans.

Í augum flestra sem til þekkja markar reiðsýningin lokapunktinn í námi við hestafræðideild og stundin, þegar væntanlegir reiðkennarar klæðast bláa jakkanum í lok sýningar, er fyrir mörgum jafngildi brautskráningar. Enda fjölmenna fjölskyldur og vinir nemendanna heim að Hólum til að fagna með sínu fólki.

Við þetta tækifæri tíðkast að veita tvenns konar viðurkenningar: Reiðmennskuverðlaun Félags tamingamanna eru veitt þeim nemanda, sem hefur hlotið hæstu einkunn á lokaprófi í reiðmennsku. Og Morgunblaðshnakkurinn fellur í skaut þeim sem er með hæstu vegna meðaleinkunn fyrir öll reiðmennskunámskeið er hann hefur tekið á námsferli sínum við skólann. Handhafi beggja viðurkenninga í ár er Valdís Björk Guðmundsdóttir. Við óskum Valdísi Björk og brautskráningarhópnum öllum til hamingju.

Brautskráning nemenda frá öllum deildum skólans fer síðan fram við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð, föstudaginn 11. júní nk.

Einnig má sjá fréttir um reiðsýninguna á mbl.is og á vef Eiðfaxa