Sambýli ferðaþjónustu og samfélaga í norrænu samhengi

Bókin Tourism and Communities: Nordic Perspectives er nýlegt fræðirit sem tekur til umfjöllunar framtíðarhorfur, tækifæri og áskoranir í sambýli ferðaþjónustu og samfélaga á Norðurlöndum. Ritstjórar bókarinnar eru Narcís Bassols i Gardella, Ulrika Persson-Fischier og Jarkko Saarinen.

Í bókinni eru birtir ritrýndir kaflar eftir fræðimenn og sérfræðinga á sviði ferðamála sem fjalla á gagnrýninn og greinandi hátt um tengsl ferðaþjónustu og samfélaga, þær áskoranir sem fylgja vexti greinarinnar og hvernig samfélög takast á við þær breytingar sem ferðaþjónustan hefur í för með sér. Sérstök áhersla er lögð á aðstæður í dreifbýli, þéttbýli og á eyjasvæðum, þar sem nýttar eru tilviksrannsóknir og raunveruleg dæmi úr norrænu samhengi.

Tveir kaflar bókarinnar fjalla sérstaklega um íslenskar aðstæður. Annar þeirra er eftir Laufeyju Haraldsdóttur, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, og Ásu Mörtu Sveinsdóttur, sérfræðing við Rannsóknarmiðstöð ferðamála. Í kaflanum er sjónum beint að viðfangsefnum sem tengjast þróun ferðaþjónustu og samfélaga á Íslandi.

Útgáfa bókarinnar er mikilvægt framlag til umræðu um sjálfbæra þróun ferðaþjónustu og hlutverk hennar í samfélaginu, ekki síst á Norðurlöndum þar sem ferðaþjónusta hefur víða orðið ein af lykilatvinnugreinum samtímans.

Bókin er aðgengileg í rafrænu formi fyrir áhugasama lesendur hér