Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Á morgun, 8. maí, fer fram viðburðurinn Samspil manna og dýra: Heilsa, velferð og tækifæri í alþjóðlegu samhengi í Háskóla Íslands, þar sem sérfræðingar frá Bandaríkjunum og Háskólanum á Hólum fjalla um vaxandi hlutverk dýra í heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu.
Viðburðurinn fer fram í Sögu, S-054, í Háskóla Íslands og verður jafnframt streymt. Þar verður kastljósinu beint að samspili manna og dýra með áherslu á áhrif þeirra á heilsu, velferð og samfélag.
Meðal fyrirlesara eru þær Nina Ekholm Fry og Erika Berg sem starfa með Háskólanum á Hólum á sviði þjónustu með aðstoð dýra og hesta. Í erindum sínum munu þær meðal annars fjalla um þróun fræðasviðsins á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum, notkun dýra í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi velferðar dýra í slíku starfi.
Einnig verður fjallað um uppbyggingu dýratengdrar þjónustu á Íslandi og nýleg rannsóknar- og þróunarverkefni við Háskólann á Hólum sem styðja við þróun þessa vaxandi sviðs.
Viðburðurinn tengist jafnframt ráðstefnunni Þjónusta með aðstoð dýra, sem fram fer á Hólum dagana 15.–16. maí. Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra - 15.-16.maí | Háskólinn á Hólum
👉 Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér:
Viðburður Háskóla Íslands