Reiðnámskeið á Hólum í boði annars árs nema á Hestafræðideild

Annars árs nemendur við Hestafræðideild Háskólans á Hólum bjóða upp á reiðnámskeið á Hólum í byrjun mars. Kennt verður á skólahestum Hólaskóla og er námskeiðið því frábært tækifæri fyrir knapa til að fá góða kennslu á vel þjálfuðum hestum.

Kennslan byggir á efni Knapamerkis 3 og er því æskilegt að þátttakendur hafi reynslu í samræmi við það stig. Námskeiðið samanstendur af fjórum verklegum tímum og tveimur bóklegum.

Verklegir tímar (50 mínútur) fara fram dagana 2., 3., 9. og 10. mars á milli kl. 18:00 og 21:00.
Bóklegir tímar (40 mínútur) verða dagana 2. og 3. mars.

Þátttakendur koma með eigin búnað og mæta í viðeigandi reiðfatnaði. Námskeiðið er án endurgjalds.

Einungis 12 pláss eru í boði. Lágmarksaldur er 15 ár og eru þátttakendur á eigin ábyrgð.

Skráning fer fram með tölvupósti á helene24@holar.is.
Síðasti skráningardagur er 26. febrúar.