Skráning á málþingið

Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi um samfélagsleg áhrif viðburða þriðjudaginn 17. mars kl. 13:00–16:00 á Hólum í Hjaltadal.

Á málþinginu verður meðal annars fjallað um öryggi viðburða, áhrif þeirra á samfélög og umhverfismál tengd viðburðahaldi, auk þess sem rætt verður um viðburði á borð við Landsmót hestamanna, sem fram fer á Hólum næsta sumar.

Aðgangur er ókeypis og einnig verður í boði beint streymi.

 

Skráning stendur yfir og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig.

Skráning hér