Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Brautskráning frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum
Alls voru 24 kandidatar brautskráðir frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum við hátíðlega athöfn þann 23. maí. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir luku námi í hestafræði við skólann en það nám lagði grunninn að því BS námi sem nú er í boði í hestafræði við Háskólann á Hólum. Við athöfnina var í fyrsta skiptið útskrifaðir nemendur með sérhæft íslensks járningamannapróf og fyrsti nemandinn með meistarapróf í hestafræði var útskrifaður.
Dagurinn byrjaði snemma hjá nemendum sem voru að ljúka BS námi sínu en þau hófu daginn með því að bjóða til reiðsýningar á hesthússvæði skólans þar sem nemendur sýndu sýnishorn úr verklegu námi sínu í reiðmennsku. Margt var um manninn í áhorfendabrekkunni þegar nemendur sýndu hesta sína í blíðskapar veðri. Að lokinni sýningu var haldið að Hólakirkju þar sem fór fram hópmyndataka af hestum og knöpum en að því loknu var haldið til brautskráningarathafnar sem fór fram í aðalbyggingu Háskólans á Hólum. Er það í fyrsta skiptið sem reiðsýningin og brautskráning frá Hestafræðideild fer fram á sama degi.
Mikilvægi Háskólans á Hólum í uppbyggingu atvinnugreina
Háskólinn á Hólum brautskráir árlega 70–80 sérfræðinga á sviðum hestafræða, fiskeldis- og fiskalíffræði og ferðamála og leggur þannig sitt af mörkum til uppbyggingar mikilvægra atvinnugreina á Íslandi. Í brautskráningarræðu Hólmfríðar Sveinsdóttur rektors, lagði hún áherslu á að menntun og rannsóknir séu lykill að sjálfbærri nýtingu auðlinda og aukinni samfélagslegri sátt um atvinnugreinar þar sem dýr og náttúra koma við sögu. Hólmfríður undirstrikaði mikilvægi útskriftarnema í að efla fagmennsku og dýravelferð, auk þess að sporna gegn upplýsingaóreiðu í samfélagsumræðu sem æ oftar skýtur upp kollinum í kringum atvinnugreinar og tómstundir þar sem dýr koma við sögu. „Það eruð þið sem hafið þekkinguna og færnina til að leiða umræðu um dýravelferð, menningararf og fagmennsku í hestamennsku“.
Alþjóðlegir möguleikar og ný tækifæri
Hólmfríður benti á í ræðu sinni að íslenski hesturinn skipar mikilvægan sess á alþjóðavettvangi og að útskrifaðir nemendur frá Hólum séu eftirsóttir starfskraftar og mörg þegar með atvinnutilboð við lok námsins. Fjöldi nýrra verkefna er í undirbúningi við deildina, meðal annars rannsóknir á áhrifum hesta á fólk sem geta leitt til þróunar náms í svokallaðri dýrastuddri þjónustu. Í ræðu rektors kom fram að brautskráningin markaði mikilvæg tímamót í sögu skólans. Í fyrsta sinn lauk nemandi meistaragráðu í hestafræði frá Hólum, auk þess sem fyrstu sex kandidatarnir útskrifuðust úr nýju alþjóðlegu námi í járningum. „Þar með er Háskólinn á Hólum orðinn brautryðjandi á sviði sérhæfðrar menntunar í járningum fyrir íslenska ganghestinn. Dagurinn brýtur blað í sögu Háskólans á Hólum en einnig í sögu íslenska hestsins,“ kom fram í ávarpinu.
Háskólasamstæða Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands í sjónmáli
Fram kom í ræðu Hólmfríðar að undanfarin þrjú ár hafi verið unnið að eflingu skólans í samstarfi við stjórnvöld og Háskóla Íslands. Skólinn hefur unnið að þremur vel skilgreindum verkefnum í samstarfi við stjórnvöld, sveitarfélagið Skagafjörð og Háskóla Íslands með það að markmiði að efla Háskólann á Hólum. Þessi verkefni eru myndun háskólasamstæðu með Háskóla Íslands, flutningur íbúaþjónustu á Hólastað til sveitarfélagsins Skagafjarðar og flutningur staðarhalds þjóðmenningarstaðarins Hóla í Hjaltadal til forsætisráðuneytisins. Öll þrjú verkefnin hafa gengið vel. Íbúaþjónusta er nú þegar komin frá háskólanum til sveitarfélagsins Skagafjarðar og staðarhald þjóðmenningarstaðarins Hóla í Hjaltadal er núna í höndum forsætisráðuneytisins. Ef frumvarp um háskólasamstæðu verður samþykkt er stefnt að því að stofna háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands frá og með 1. júlí næstkomandi. Samkvæmt rektor mun sú þróun styrkja stöðu skólans verulega, meðal annars með betri aðstöðu, aukinni stoðþjónustu og öflugra rannsóknastarfi. Háskólar starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem mikil samkeppni er um rannsóknapeninga, starfsfólk og nemendur. Til að eiga séns í þessari samkeppni er mikilvægt að háskólarnir uppfylli alþjóðlega gæðastaðla, búi yfir góðum innviðum og séu með breiða og góða stoðþjónustu fyrir nemendur og starfsfólk. „Að mínu mati er þetta mikið framfaraskref fyrir Háskólann á Hólum og mun efla háskólann sem sérhæfðan háskóla á landsbyggðinni“ sagði Hólmfríður.
„Haldið áfram að elta draumana“
Í lok ræðu sinnar hvatti rektor nýbrautskráða kandidata til að halda áfram að þróa þekkingu sína og fylgja ástríðu sinni. „Ekki láta neitt stoppa ykkur, haldið áfram að vera það sem þið elskið, haldið áfram að vera forvitin, afla ykkur þekkingar og vinna með hestinum af fagmennsku og virðingu“, sagði rektor og bætti við að Hólar yrðu ávallt þeirra heimavöllur.
Brautskráning kadídata
Víkingur Gunnarsson deildarstjóri Hestafræðideildar brautskráði nemendur og hélt ávarp þar sem hann kom inn í mikilvægi námsins á Hólum fyrir íslenska hestinn og þróun atvinnugreinarinnar. Fagmennskan væri orðin mikil og það væri ekki síst náminu í hestafræði við Háskólann á Hólum að þakka og með alþjóðlegu sérhæfðu járningamannaprófi er enn einn grunnurinn að öflugu og alþjóðlegu námi við skólann lagður. Víkingur fjallaði einnig um tækifærin sem felast í háskólasamstæðunni, sérstaklega varðandi aukið rannsóknarstarf, aðgengi að öflugu stoðkerfi og samstarf við fræðasvið innan Háskóla Íslands. Við athöfnina flutti formaður Járningamannafélags Íslands ávarp en félagið hefur stutt við undirbúning námsins og fylgt því vel úr hlaði. Þá hefur heildsalan O. Johnson & Kaber – ÍSAM stutt við námið frá upphafi en Járningamannafélagið og OJ&K- ISAM gáfu hverjum járningamanni viðurkenningu við athöfnina.
Alls voru sex kandídatar brautskráðir með Sérhæft íslenskt járningamannapróf, 17 kandídatar með BS í Reiðmennsku og reiðkennslu og einn nemandi með MS í Hestafræði.
Verðlaun fyrir námsárangur
Hera Sól Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir bestan samanlagðan árangur í BS námi í Reiðmennsku og reiðkennslu. Carlotta J. Börgmann og Kristófer Darri Sigurðsson fengu verðlaun fyrir bestan árangur í kennslufræði. Þórey Þula Helgadóttir hlaut Morgunblaðshnakkinn fyrir besta samanlagðan árangur í reiðmennsku. Félag Tamningamanna gefur svokallaðan FT-skjöld fyrir bestan árangur á lokaverkefni í reiðmennsku, þau verðlaun hlaut einnig Þórey Þula Helgadóttir.
Í lok athafnar flutti Ingrid Tvergrov hjartnæmt ávarp fyrir hönd nemenda þar sem hún lagði áherslu á vináttuna í hópnum og þakklæti til skólans að þeirri vegferð sem nú tekur við að loknu náminu við Háskólann á Hólum..
Á athöfninni sungu og spiluðu Gunnhildur Gísladóttir, Ísak Agnarsson og Lydía Einarsdóttir tvö lög. Að lokinni athöfn var boðið til kaffisamsætis í mötuneyti skólans.
Háskólinn á Hólum óskar öllum brautskráðum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og hlakkar til að fylgjast með framlagi þeirra til fagins, heima sem erlendis. Brautskráning nemenda í Fiskeldis- og fiskalíffræði og Ferðamálafræði fer fram heim að Hólum föstudaginn 5. júní n.k.





Fleiri myndir af útskriftinni koma síðar