Stofnsamningur háskólasamstæðu Háskóla Íslands undirritaður á Hólum

Silja Bára R. Ómarsdóttir, Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Hólmfríður …
Silja Bára R. Ómarsdóttir, Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, á Hólum fyrr í dag. MYND/Sigurður Ingi Pálsson

Samningur um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands var undirritaður á Hólum í Hjaltadal í dag. Með undirrituninni hefst nýr kafli í íslensku háskólastarfi. Frá og með 1. júlí nk. mun Háskóli Íslands starfa sem samstæðuháskóli og Háskólinn á Hólum verður aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Það voru Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, sem undirrituðu samninginn.

Stofnun háskólasamstæðunnar byggir á nýjum lögum um opinbera háskóla sem Alþingi samþykkti fyrr í mánuðinum og markar tímamót í þróun íslensks háskólakerfis. Markmið samstæðunnar er að efla samkeppnishæfni háskólanna, auka gæði náms, rannsókna og stoðþjónustu og styrkja tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt. Samstæðunni er jafnframt ætlað að auka fjölbreytni í námsframboði, þróa og samþætta námsleiðir í takt við breyttar þarfir og styrkja rannsóknasamstarf.

„Það sem gerir þessi tímamót sérstök er að hér er verið að byggja á styrkleikum tveggja öflugra skóla og skapa ný tækifæri fyrir þverfræðileika, rannsóknir og nýsköpun,“ sagði Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í ávarpi sínu á Hólum í dag.

Mikilvægri vörðu hefur verið náð

Samkvæmt samningnum verður Háskóli Íslands samstæðuháskóli. Háskólinn á Hólum verður sjálfstæður, sérhæfður aðildarháskóli innan samstæðunnar og mun starfa undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Háskólasamstæðan mun lúta sameiginlegri yfirstjórn. Háskólaráð Háskóla Íslands verður háskólaráð samstæðunnar og rektor skólans verður formaður þess.

Háskóla Íslands á Hólum er jafnframt tryggð sérstök staða innan samstæðunnar með eigin forseta, stjórn og samstarfsráði. Hólmfríður Sveinsdóttir, núverandi rektor Háskólans á Hólum, verður forseti Háskóla Íslands á Hólum til 30. júní 2031.

„Mikilvægri vörðu hefur verið náð með undirritun stofnsamnings hér í dag,” sagði Hólmfríður í ávarpi sínu. „Háskólinn á Hólum er ekki að fara neitt, Háskóli Íslands er að koma í Skagafjörð og því fylgja endalaus tækifæri fyrir okkur sem hér búa til að efla okkar góða samfélag. Háskólasamstæðan er í mínum huga eitt mikilvægasta byggðaverkefnið sem nú er í gangi.“

Í samstarfsráði háskólasamstæðunnar eiga sæti rektor Háskóla Íslands, forseti Háskóla Íslands á Hólum og fulltrúar beggja skóla. Samstarfsráðið mun meðal annars fjalla um samstarf á sviði náms, kennslu og rannsókna og vera ráðgefandi fyrir rektor og háskólaráði um málefni Háskóla Íslands á Hólum.

Mikilvægur áfangi fyrir skólana tvo, háskólakerfið og landið allt

Samningurinn felur ekki aðeins í sér breytingar á stjórnskipulagi heldur einnig skýra framtíðarsýn um áframhaldandi uppbyggingu háskólastarfs í Skagafirði. Þar er lögð áhersla á öfluga innviði, eflingu rannsóknastarfs og að styrkja enn frekar þá öflugu starfsemi sem þegar hefur byggst upp á sviði fiskeldis og fiskalíffræði, ferðamálafræði og hestafræði.

Í samningnum er meðal annars kveðið á um uppbyggingu nýs lagareldishúss sem gert er ráð fyrir að verði tekið í notkun fyrir árslok 2027 og áframhaldandi vinnu vegna húsnæðismála hestafræðinnar, sem samkvæmt samningnum eru mikilvæg forsenda áframhaldandi þróunar og eflingar námsins.

Í samningnum kemur fram að Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið muni á komandi mánuðum og misserum vinna náið með fjármála- og efnahagsráðuneytinu að því að tryggja endanlega fjármögnun vegna húsnæðismála HÍ á Hólum, með fyrirvara um að Alþingi samþykki fjárheimildir. Í samningnum er einnig sérstaklega kveðið á um að í tengslum við ráðningar í störf í stjórnsýslu og stoðþjónustu samstæðunnar verði leitast við að fjölga störfum sem staðsett eru í Skagafirði.

„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir skólana tvo, háskólakerfið og landið allt,“ sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. „Hér er byggt á sögu og sérstöðu beggja skóla og með því að tengja þá saman í háskólasamstæðu erum við að styrkja þá báða og leysa úr læðingi nýja krafta. Nú höldum við áfram að byggja upp og tryggja innviði, mannauð og aðstöðu Háskóla Íslands á Hólum í góðu samstarfi allra þátttakenda. Ég hlakka til framhaldsins.“

Aukin tækifæri fyrir nemendur og samfélagið

Frá og með 1. júlí verða nemar Háskóla Íslands á Hólum nemar háskólasamstæðunnar, en brautskráning kandídata mun fara fram á Hólum eins og verið hefur.

Með stofnun háskólasamstæðunnar verður til nýr og öflugur vettvangur fyrir samstarf, þekkingarsköpun og uppbyggingu háskólastarfs á Íslandi. Sameiginlegir kraftar Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum munu skapa ný tækifæri fyrir menntun, rannsóknir og nýsköpun og styrkja enn frekar háskólastarf um land allt.

„Þekkingarsköpun á ekki að vera bundin við einn stað. Öflugt háskólastarf þarf að eiga sér heimavöll víða og vera í nánum tengslum við samfélag, atvinnulíf, menningu, auðlindir og náttúru þeirra svæða sem það þjónar,” sagði Silja Bára, rektor HÍ, þegar samningurinn var handsalaður. „Háskóli Íslands er kominn heim að Hólum.“

Silja Bára R. Ómarsdóttir, Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, undirrita samning um stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands á Hólum í Hjaltadal í dag. MYND/Sigurður Ingi Pálsson