Styrkur til rannsókna á sníkjudýrum í íslenskri bleikju

Dylan O’Hagan, nemandi í MARBIO-námi við Háskólann á Hólum, hefur hlotið rannsóknastyrk fyrir verkefni sitt Diversity and prevalence of parasites in Icelandic small benthic Arctic charr. Styrkurinn var veittur af Líffræðifélagi Íslands og Les Amis de Jean Baptiste Charcot en tveir styrkir voru veittir að þessu sinni.

Styrkurinn mun styðja við vettvangsrannsóknir Dylans sumarið 2026, en fyrirhugað er að safna gögnum á sex mismunandi rannsóknarsvæðum víðs vegar um landið.

Rannsóknarverkefnið beinist að fjölbreytni og algengi sníkjudýra í smávaxinni botnlægri bleikju (Small Benthic Arctic Charr) í íslenskum lindavistkerfum. Bleikjustofnar á Íslandi eru þekktir fyrir mikla fjölbreytni í útliti og aðlögun að ólíkum búsvæðum, sérstaklega í lindavistkerfum á virkum gosbeltum landsins. Þessi búsvæði eru oft lítil, hitastöðug og tiltölulega einangruð sem hefur skapað sérstakar aðstæður fyrir þróun og staðbundna aðlögun stofna.

Í verkefninu verður meðal annars rannsakað hvort munur sé á fjölbreytni og algengi sníkjudýra milli ólíkra lindavistkerfa og hvort tengsl séu milli fæðuvals bleikjunnar og tegunda eða fjölda sníkjudýra. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að munur á fæðu og fæðukeðjum geti haft áhrif á sníkjudýrasamfélög hjá laxfiskum, en slíkar rannsóknir hafa hingað til ekki verið framkvæmdar á þessari vistgerð bleikju á Íslandi.

Leiðbeinandi Dylans er Camille A. Leblanc við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.

Háskólinn á Hólum óskar Dylan innilega til hamingju með styrkinn og hlakkar til að fylgjast með framvindu verkefnisins.

👉 Frétt Líffræðifélags Íslands má lesa hér:
Líffræðifélag Íslands – úthlutun könnunarstyrkja