Þjónustuborð Háskólans á Hólum í sumarleyfi

Þjónustuborð Háskólans á Hólum verður lokað frá 15. júní til 11. ágúst vegna sumarleyfa. Þjónustusími skólans verður lokaður frá 26. júní til 4. ágúst.

Þótt þjónustuborðið og þjónustusíminn verður lokað yfir hluta sumarsins verður áfram hægt að hafa samband við skólann með því að senda tölvupóst á holar@holar.is. Fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og auðið er.

Við þökkum nemendum, starfsfólki, samstarfsaðilum og öðrum velunnurum skólans fyrir samstarfið á liðnu námsári og óskum öllum gleðilegs og ánægjulegs sumars.

Við hlökkum til að taka á móti nemendum og gestum á ný þegar þjónustuborðið opnar aftur 11. ágúst og starfsemi skólans fer af fullum krafti af stað með haustinu.