Þorsteinn Björnsson kennari við Háskólann á Hólum er reiðkennari ársins

Við verðlaunaafhendingu
Við verðlaunaafhendingu

Á hverju ári biður FEIF um tilnefningar til “trainer/instructor of the year” frá hverju landi. Undanfarin ár hefur Menntanefnd LH auglýst eftir tilnefningum til reiðkennara ársins sem fara svo í netkosningu. ef fylgir rökstuðningur. Að þessu sinni voru það þau Hekla Katharína Kristinsdóttir, Þorsteinn Björnsson og Finnbogi Bjarnason sem fengu tilnefningar. Góð þátttaka var í kosningunum og hlutu allir mörg atkvæði en einn stóð uppúr og hlýtur titilinn reiðkennari ársins.

Þorsteinn hefur starfað sem reiðkennari á Hólum síðan 2008, það eru 15 ár. Hann hefur þess vegna haft mótandi áhrif á reiðkennara framtíðarinnar. Hann kennir á öllum stigum og kennir allt innan hestamennsku, afskaplega sveigjanlegur. Hann getur stokkið til og kennt hverjum sem er og komið með uppbyggileg ráð, oft sett fram með einföldum hætti. Hann hefur einnig eiginleikann að láta nemendur ekki velta sér of mikið upp úr mistökum, sem er afskaplega mikilvægt til að hafa skapandi umhverfi. Þar sem léttleiki og leikur fá að njóta sín, gerast oft skemmtilegir hlutir.

Sérstakt áhugamál Þorsteins er þó skeið. Fyrir utan það að hafa náð góðum árangri sjálfur í skeiðgreinum er hann líklega með reyndustu skeiðkennurum heims í dag þar sem hann hefur séð um skeiðkennsluna við Háskólann á Hólum í meira og minna síðustu 10 ár. Það mundi vera 8-10 skeið hópatímar í viku!

Einnig hefur hann mikinn áhuga á að kenna frumtamningar þar sem oft reynir á að efla kjark og traust nemandans.

Steini kennir líka á öðrum vettvangi. Hann hefur komið að Hæfileikamótun LH undanfarinn ár og einmitt tekið á móti þeim hópum á Hólum. Þorsteinn hefur verið þjálfari fyrir ungmenni í landsliðum, kennir einkatíma og almenn helgarnámskeið hjá hestamannafélögum.

Þorsteinn er reiðkennari ársins fyrir Íslands hönd í kosningu Feif á “Feif trainer/instructor of the year” á vefsíðu FEIF. Kosið verður milli fulltrúa frá mörgum löndum eftir jól.

Við óskum Þorsteini til hamingju og hvetjum ykkur öll til að kjósa þegar opnað verður fyrir valið á FEIF reiðkennara ársins 2023.