UArctic ráðstefna

Ráðstefna Háskóla norðurslóða eða University of the Arctic fer fram dagana 15. - 18. maí í Reykjavík.
Ráðstefnan í ár, sem að þessu sinni er að mestu rafræn, er skipulögð af íslenskum háskólastofnunum sem eru aðilar að University of the Arctic.
University of the Arctic er samstarfsnet háskóla og menntastofnana á háskólastigi sem vinna að menntun og rannsóknum á norðurskautssvæðinu, um 200 háskólar og stofnanir víða um heim eru aðilar að UArctic.
Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman fræðimenn, sérfræðinga, fulltrúa frumbyggja og ekki síst nemendur til að ræða saman um málefni norðurslóða, efla samvinnu þegar kemur að rannsóknum og stuðla að sjálfbærum lausnum á þeim áskorunum sem svæðið stendur frammi fyrir.
Ráðstefnan er tengd formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu og þar verður lögð sérstök áhersla á loftslagsmál og grænar orkulausnir, íbúa á norðurslóðum og vistkerfi sjávar á svæðinu. Einnig verður hægt að fræðast um mannréttindi, stjórnmál, jafnrétti, öryggismál og margt fleira sem tengist málefnum norðurslóða.

Nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt og er þátttaka þeirra gjaldfrjáls.