Umsækjendur um stöðu rektors

Alls bárust fjórar umsóknir um stöðu rektors, en umsóknarfrestur rann út 7. febrúar 2022.

Umsækjendur eru:

Anna Gréta Ólafsdóttir, fv. skólastjóri
Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknastjóri
Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri
Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri

Háskólaráð Háskólans á Hólum hefur skipað valnefnd sem metur hæfi umsækjenda.

Nefndina skipa:
Skúli Skúlason, prófessor, formaður nefndarinnar
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor og aðstoðarrektor vísinda
Sigurður Kristinsson, prófessor

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipar háskólarektor til fimm ára frá og með 1. júní 2022, samkvæmt tilnefningu háskólaráðs.