Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Ný upplýsingasíða um uppbyggingu og þróun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands er nú komin í loftið. Síðan er ætluð að vera miðlægur vettvangur fyrir upplýsingar um verkefnið, framgang þess og helstu áfanga í undirbúningi sameiginlegrar starfsemi.
Markmið síðunnar er að stuðla að gagnsæi og tryggja að starfsfólk, nemendur og aðrir hagsmunaaðilar hafi greiðan aðgang að uppfærðum upplýsingum um verkefnið. Þar má finna yfirlit yfir skipulag og verkþætti, upplýsingar um verkefnateymi og helstu ákvörðunarpunkta, auk frétta og reglulegra uppfærslna um stöðu mála.
Með sameiningu krafta beggja skóla er stefnt að því að efla kennslu, rannsóknir og þjónustu við samfélagið á landsvísu. Upplýsingasíðan er liður í því að halda háskólasamfélaginu vel upplýstu á meðan uppbygging háskólasamstæðunnar stendur yfir.
Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér síðuna og fylgjast með framvindu verkefnisins á:
👉 Upplýsingarsíða Háskólasamstæðunnar