Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Útikennsla Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum fór fram í Hólaskógi dagana 7.–9. maí 2025. Markmið námskeiðsins var að tengja bóklegt nám fyrsta árs nemenda við verklega vinnu í náttúru, auka færni þeirra í stígagerð og náttúrutúlkun og styrkja samfélagslega ábyrgð. Kennari var Kjartan Bollason og aðstoðarkennari Broddi Reyr Hansen.
Um allan Hólaskóg liggja göngustígar sem nemendur 1. ári í Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hafa síðustu áratugi að mestu lagt og haldið við, ásamt því að Sjálfboðaliðar í Náttúruvernd frá Umhverfisstofnun hafa oft komið og aðstoðað. Einnig hafa félagar í Skógræktarfélaginu á Hólum verið mikilvægur þáttur í að hægt er að bjóða upp á fjölbreytt verkefni á námskeiðinu, bæði með því að grisja í skóginum og tryggja þannig helstu gönguleiðir en einnig með því að saga niður efnivið í þrep og göngubrýr.
Í þetta skiptið tók einn félagi í Skógrækarfélaginu á Hólum beinan þátt og var aðstoðin ómetanlega í að flýta og auðvelda verk – eins og að gera við göngubrú – en einnig í að sýna þekkingu á bálmati og útieldun, sem hópur nemenda og kennnara nutu.
Nýnæmi var að í þetta skiptið tóku tveir gestanemar þátt, frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri (LBHÍ). Þessir nemendur eru í námi í landslagsarkitektúr við LBHÍ og var mjög áhugavert að fá þeirra sjónarmið og bera saman við sjónarhorn nemenda á Hólum í Ferðamálafræði. Auki tók að hluta þátt nemandi frá Hólum, sem er í meistaranámi í Fiskalíffræðideild, sem kom með enn eitt nýtt og áhugavert sjónarmið á náttúrutúlkun og göngustígagerð.
Sem hluti af verkefnum þessa námskeiðs hönnuðu og útfærðu nemendur við Ferðamáladeildina verkefni um náttúrutúlkun og framkvæmdu gönguferð í náttúrutúlkun inni í skóginum, þar sem áherslan var á að læra að tengja sig og sína gesta við gagnverk náttúrunnar. Nemendur unnu einnig að viðgerð og viðhaldi við stíganna, sér í lagi við að endurbyggja göngubrú, sem var orðin léleg. Sú brú hafði þó enst í rúm 10 ár, en er mikið notuð og því komið að því að endurbyggja hana. Einnig var gert við þrep, sem – eins og göngubrúin - liggja á aðalstígnum að tjaldstæðinu inn í Hólaskógi.
Nemendur sáu svo einnig um að grisja aðalgönguleiðirnar og snyrta torfbekkinn og – borðið inní skóginum, sem var byggt með nemendum og með aðstoð Helga Sigurðarsonar frá Fornverkaskólanum, sumarið 2022.
Í gegnum þessi fjölbreyttu verkefni læra nemendur margt um hönnun og viðhald á náttúrustígum ásamt því að gefa til samfélagsins á Hólum með því að halda við dýrmætu stígakerfi sem nýtist íbúum Hóla og gestum sem heimsækja staðinn.
Náttúrutúlkunin og göngustígagerðin er hluti af námskeiðinu gönguferðir, leiðsögn og stígagerð og stór þáttur í verkefnum fyrsta árs nema til að fá landvarðaréttindi sem Náttúruverndarstofnun (áður Umhverfisstofnun) veitir.
Öll þessi vinna við stígagerð er þó ekki mögulega nema vegna þeirrar vinnu sem heimamenn og Skógræktarfélagið á Hólum hafa lagt í að saga niður tré, sem hafa fallið á stíga og grisja svo hægt sé að halda áfram að viðhalda og þar með nota það góða stígakerfi sem leiðir heimafólk og gesti inn á ævintýraheima skógarins, hvort sem er að sumri eða vetri.