Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Háskólinn á Hólum
- Miðlæg stjórnsýsla
- Háskólasvæðið
- Stefnur og starfsreglur
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
- Viðburðir
Karfan er tóm.
Dagana 11.–13. mars fóru nemendur í diplómanámi í fiskeldi og meistaranámi í MARBIO í gegnum umfangsmikið verklegt námskeið á Hólum þar sem áhersla var lögð á slátrun og vinnslu fiska.
Námskeiðið var hagnýtt og fjölbreytt og gaf nemendum tækifæri til að kynnast öllum helstu þáttum sem tengjast meðhöndlun fiska eftir slátrun. Sérstök áhersla var lögð á velferð dýra og að beita bestu aðferðum til að lágmarka álag og tryggja gæði afurðar.
Nemendur framkvæmdu einnig ýmsar mælingar á líffræðilegum þáttum, svo sem þyngd, líffærum og holdgæðum, og unnu með gögn sem nýtt eru til að meta ástand og gæði fisks. Þá fylgdust þeir með breytingum sem eiga sér stað eftir slátrun, svo sem dauðastirðnun (rigor mortis) og breytingum á sýrustigi og hitastigi.
Auk þess fengu nemendur þjálfun í verklegum þáttum eins og flökun og mati á lit og gæðum flaka með bæði hefðbundnum og tæknilegum aðferðum.
Námskeiðinu lauk með kynningum nemenda þar sem þeir greindu frá niðurstöðum sínum og reynslu. Verklegi þátturinn er mikilvægur hluti námsins og tengir saman fræðilega þekkingu og raunveruleg vinnubrögð í fiskeldi.
Hægt er að skoða ítarlegri frétt hér - holaraquatic.is