Hátíðleg brautskráning við Ferðamáladeild og Fiskeldis- og fiskalíffræðideild

Myndataka: Hilmar Friðjónsson
Myndataka: Hilmar Friðjónsson

Brautskráning nemenda í Fiskeldis- og fiskalíffræði og Ferðamálafræði

Alls voru 20 kandidatar brautskráðir frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild og Ferðamáladeild við hátíðlega athöfn þann 5. júní. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir hófu nám í ferðamálafræði við skólann en það nám lagði grunninn að því BS námi sem nú er í boði í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum.

Alls luku 11 nemendur diplómanámi í Viðburðarstjórnun, einn með BA í Stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta og þrjú með BA gráðu í Ferðamálafræði. Einn nemandi lauk meistaranámi í útivistarfræði. Þrír nemendur luku meistaranámi í Sjávar- og vatnalíffræði og einn með diplómu í Fiskeldisfræði. Alls hafa því verið brautskráðir 44 nemendur frá skólanum nú í vor þar sem 24 nemendur luku námi í hestafræðideild þann 23. maí s.l.

Mikilvægi Háskólans á Hólum í uppbyggingu atvinnugreina

Við Háskólann á Hólum er lögð rík áhersla á sjálfbæra auðlindanýtingu og dýravelferð. Útskrifaðir nemendur búa því yfir þekkingu og færni til að taka þátt í uppbyggingu mikilvægra atvinnugreina með ábyrgð og fagmennsku að leiðarljósi. Háskólinn á Hólum brautskráir árlega 70–80 sérfræðinga á sviðum hestafræða, fiskeldis- og fiskalíffræði og ferðamála og leggur þannig sitt af mörkum til uppbyggingar mikilvægra atvinnugreina á Íslandi. Í brautskráningarræðu Hólmfríðar Sveinsdóttur rektors, lagði hún áherslu á að menntun og rannsóknir séu lykill að sjálfbærri nýtingu auðlinda og aukinni samfélagslegri sátt um atvinnugreinar þar sem dýr og náttúra koma við sögu. Hólmfríður undirstrikaði mikilvægi útskriftarnema í að efla fagmennsku og dýravelferð, auk þess að sporna gegn upplýsingaóreiðu í samfélagsumræðu sem æ oftar skýtur upp kollinum í kringum atvinnugreinar og tómstundir þar sem dýr koma við sögu.

Í fiskeldi og fiskalíffræði hafa nemendur unnið að þróun sjálfbærs lagareldis, í ferðamálum og viðburðastjórnun er áhersla á ábyrga ferðaþjónustu og virðingu fyrir náttúru og menningu, og í hestafræði er unnið með velferð og menningarlegt gildi íslenska hestsins. Nemendur skólans koma víða að og hafa lagt mikið á sig til að elta drauma sína. Háskólinn á Hólum býr yfir öflugum innviðum og sérhæfðu starfsfólki, og markmiðið er að halda áfram að efla starfsemi skólans og styðja við framtíðarþróun þessara mikilvægu greina. „Ég er afar stolt af því að vera rektor í háskóla sem bíður upp á nám þar sem nemendur öðlast þá þekkingu og færni í nánu samstarfi við samfélög og atvinnulíf sem ég hef upplifað hjá ykkur“ sagði Hólmfríður.

Háskólasamstæða Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands í sjónmáli

Fram kom í ræðu Hólmfríðar að undanfarin þrjú ár hafi verið unnið að eflingu skólans í samstarfi við stjórnvöld og Háskóla Íslands. Skólinn hefur unnið að þremur vel skilgreindum verkefnum í samstarfi við stjórnvöld, sveitarfélagið Skagafjörð og Háskóla Íslands með það að markmiði að efla Háskólann á Hólum. Þessi verkefni eru myndun háskólasamstæðu með Háskóla Íslands, flutningur íbúaþjónustu á Hólastað til sveitarfélagsins Skagafjarðar og flutningur staðarhalds þjóðmenningarstaðarins Hóla í Hjaltadal til forsætisráðuneytisins. Öll þrjú verkefnin hafa gengið vel. Íbúaþjónusta er nú þegar komin frá háskólanum til sveitarfélagsins Skagafjarðar og staðarhald þjóðmenningarstaðarins Hóla í Hjaltadal er núna í höndum forsætisráðuneytisins. Þann 1. júní sl. samþykkt Alþingi Íslendinga frumvarp um háskólasamstæður sem felur í sér að Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum mega sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands sem mun taka formlega til starfa 1. júlí næstkomandi. Með samþykkt laganna verður Háskóli Íslands samstæðuháskóli en Háskólinn á Hólum starfar sem aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum. Samkvæmt rektor mun háskólasamstæðan styrkja stöðu Háskólans á Hólum verulega, meðal annars með betri aðstöðu, aukinni stoðþjónustu og öflugra rannsóknastarfi. Háskólar starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem mikil samkeppni er um rannsóknapeninga, starfsfólk og nemendur. Til að eiga séns í þessari samkeppni er mikilvægt að háskólarnir uppfylli alþjóðlega gæðastaðla, búi yfir góðum innviðum og séu með breiða og góða stoðþjónustu fyrir nemendur og starfsfólk. „Að mínu mati er þetta mikið framfaraskref fyrir Háskólann á Hólum og mun efla háskólann sem sérhæfðan háskóla á landsbyggðinni“ sagði Hólmfríður.

„Haldið áfram að vera það sem þið elskið“

Í lok ræðu sinnar hvatti rektor nýbrautskráða kandidata til að halda áfram að þróa þekkingu sína og fylgja ástríðu sinni. „Ég hlakka til að fylgjast með ykkur í framtíðinn. Þið hafið tileinkað ykkur færni og þekkingu sem er einstök og þið getið gert það aftur. Ekki láta neitt stoppa ykkur, haldið áfram að vera það sem þið elskið“, sagði rektor að lokum.

Brautskráning kandídata

Ingibjörg Sigurðardóttir deildarstjóri Ferðamálafræðideildar brautskráði nemendur og hélt ávarp þar sem hún kom inn í mikilvægi námsins á Hólum fyrir þróun og eflingu ferðaþjónustu og stjórnun viðburða sem atvinnugreinar á Íslandi. Ingibjörg minntist þess í ræðu sinni að 30 ár væru nú liðin frá því að nám í ferðamálafræði hófst við Hólaskóla. Af því tilefni flutti Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála ávarp þar sem hún sagði frá því hvernig stofnun námsbrautar í ferðamálafræði var sett á laggirnar fyrir 30 ára. Áhugavert var að heyra lýsingu Guðrúnar Þóru á áherslur í náminu á upphafsdögum þess s.s. um sjálfbærni, stjórnun viðburða og rekstur ferðaþjónustu í dreifbýli en þessi viðfangsefni eiga enn við í dag.

Nadía Mist Sigurbjörnsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í diplómunámi í Viðburðastjórnun og Ingibjörg Jóhannsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í BA námi í Ferðamálafræði.

Bjarni Kristófer Kristjánsson deildarstjóri Fiska- og fiskalíffræðideildar hélt ávarp áður en hann brautskráði nemendur frá deildinni. Í ávarpi Bjarna kom fram mikilvægi þeirra rannsókna sem fara fram innan deildarinnar og tenging þeirra við alþjóðlegt samstarf. Þá er diplóma í Fiskeldi mikilvæg fyrir starfsfólk sem vinna innan greinarinnar ásamt því að vera grunnur að frekara námi í fiskeldi eða tengdum greinum innan fiskalíffræðinnar.

Í lok athafnar flutti Sólveig Birna H. Elísabetardóttir ávarp fyrir hönd nemenda þar sem hún lagði áherslu á við samnemendur sína að nýta vel menntunina og efla vinasambönd. Í máli Sólveigar Birnu kom jafnframt fram mikilvægi þess að nemendur taki þátt í mótun háskólasamstæðunnar í framtíðinni og að efla rödd nemenda í háskólasamfélaginu en Sólveig Birna hefur setið sem fulltrúi nemenda í Háskólaráði Háskólans á Hólum og í lykilhóp um kennslumál tengt háskólasamstæðunni.

Á athöfninni sungu og spiluðu Gunnhildur Gísladóttir, Ísak Agnarsson og Lydía Einarsdóttir tvö lög. Að lokinni athöfn var boðið til kaffisamsætis í mötuneyti skólans.

Háskólinn á Hólum óskar öllum brautskráðum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og hlakkar til að fylgjast með framlagi þeirra til fagins, heima sem erlendis.

Þessi brautskráning var síðasta brautskráning frá Háskólanum á Hólum þar sem næsta brautskráning við skólann mun fara fram í nafni Háskóla Íslands á Hólum.