Gabrielle Ladurée hlýtur styrk frá Rannís

Á dögunum hlaut Gabrielle Ladurée, doktorsnemi við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum, styrk frá Rannís til að styðja við áframhaldandi doktorsnám hennar. Styrkurinn mun gera henni kleift að halda áfram rannsóknum sínum á vistfræði og hegðun laxfiska.

Rannsóknir Gabrielle beinast að því hvort hegðun seiða laxfiska sem lifa í straumvötnum sé stöðug yfir tíma. Slík þekking er mikilvæg þegar spáð er fyrir um hvernig fiskstofnar bregðast við breytingum í umhverfinu og getur þannig haft þýðingu fyrir verndun og stjórnun fiskistofna.

Nýverið birti Gabrielle einnig sína fyrstu vísindagrein sem byggir á doktorsverkefni hennar. Þar eru fyrstu niðurstöður rannsókna hennar kynntar og var áður sagt frá birtingunni í frétt hér á heimasíðu Háskólans á Hólum. Gabrielle birtir fyrstu vísindagreinina úr doktorsverkefninu sínu! | Háskólinn á Hólum

Við óskum Gabrielle innilega til hamingju með styrkinn og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi rannsóknum hennar.