Inga Huld hefur verið ráðin kennslustjóri Háskólans á Hólum

Ingibjörg Huld Þórðardóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra við Háskólann á Hólum og kemur hún til starfa þann 1. ágúst nk. Inga Huld mun hafa faglega umsjón með kennslumálum skólans, svo sem þróun nýrra námsleiða, samræmingar á kennsluskrám og starfi kennslunefndar.