Kynningar á lokaverkefnum í Hestafræðideild

Dagana 16.–17. apríl kynntu lokanemar í Hestafræðideild Háskólans á Hólum rannsóknarverkefni sín á sérstakri ráðstefnu sem markar uppskeru námsins hjá 3ja árs nemum.

Meistaraverkefni um hegðun bleikju kynnt á föstudagsmálstofu

Nýverið kynnti meistaranemi við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum rannsókn sína á hegðun bleikju á föstudagsmálstofu deildarinnar.

Nemandi frá Hólum lýkur setu í fulltrúaráði LÍS

Sólveig Birna H. Elísabetardóttir, nemandi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum, lauk nýverið tveggja ára setu í fulltrúaráði Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS). Landsþing samtakanna fór fram um síðustu helgi á Akureyri.

Háskólinn á Hólum tók þátt í Háskóladeginum víðs vegar um landið

Háskólinn á Hólum tók þátt í Háskóladeginum sem haldinn var víðs vegar um landið í vor og kynnti þar fjölbreytt nám og starfsemi skólans fyrir áhugasömum gestum.

Háskólinn á Hólum tekur þátt í Háskólalestinni

Háskólinn á Hólum tekur þátt í Háskólalestinni í samstarfi við Háskóla Íslands dagana 16.–18. apríl. Á dagskránni eru meðal annars námskeið fyrir grunnskólanemendur og opið hús í Árskóla.

Verklegt námskeið í fiskvinnslu og gæðum á Hólum

Nemendur í fiskeldisnámi á Hólum tóku nýverið þátt í verklegu námskeiði þar sem þeir fengu að kynnast slátrun, vinnslu og gæðamati á bleikju.

Nýr jafnvægisstóll bætir þjálfun knapa á Hólum

Nýtt og spennandi kennslutæki hefur verið tekið í notkun við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Jafnvægisstóllinn gefur nemendum einstakt tækifæri til að þjálfa jafnvægi, líkamsbeitingu og samskipti við hestinn, án þess að vera á baki.

Alþjóðleg vinnuvika um lax og silunga á Hólum

Í byrjun mars stóð Háskólinn á Hólum fyrir alþjóðlegri vinnuviku þar sem fræðafólk og ungt vísindafólk frá fjölmörgum löndum kom saman til að fjalla um lax og silunga og deila nýjustu rannsóknum.

Páskakveðjur frá Háskólanum á Hólum

Háskólinn á Hólum sendir nemendum, starfsfólki og velunnurum sínum hlýjar páskakveðjur.