Staðarlota Ferðamáladeildar við Háskólann á Hólum vel heppnuð

Nýverið fór fram staðarlota hjá Ferðamáladeild Háskólans á Hólum þar sem fjarnemar komu saman á staðnum til fjölbreyttrar kennslu, vettvangsferða og samveru.

Kostur frá Hólum stal senunni

Í dómaraprófi nemenda á 3. ári í Kennslufræði V lét einn af skólahestum Hólaskóla ekki sitt eftir liggja, Kostur frá Hólum kaus klapp og samveru fram yfir allt annað.

Fulbright-styrkþegi Erika Berg gengur til liðs við hestafræðideild Háskólans á Hólum

Háskólinn á Hólum býður Dr. Eriku Berg hjartanlega velkomna, en hún er Fulbright-styrkþegi frá Bandaríkjunum og dósent í dýrafræði við North Dakota State University. Erika mun starfa við hestafræðideildina frá janúar til júní 2026.

Gabrielle birtir fyrstu vísindagreinina úr doktorsverkefninu sínu!

Gabrielle Ladurée, doktorsnemi við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum, hefur birt sína fyrstu vísindagrein sem hluta af doktorsverkefni sínu. Greinin birtist nýverið í alþjóðlega ritrýnda tímaritinu Behavioral Ecology and Sociobiology og markar mikilvægan áfanga í rannsóknum hennar.

Starfsemi hafin að nýju og sögulegur fundur rektora

Starfsemi Háskólans á Hólum er hafin að nýju eftir jólafrí. Nýverið kom samstarfsnefnd háskólastigsins saman, þar sem í fyrsta sinn funduðu allar sjö konurnar sem leiða íslenska háskóla.

Fyrrum lektor við Ferðamáladeild hlýtur fálkaorðu

Fyrrum lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, Sigríður Sigurðardóttir, var nýverið sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir mikilvægt framlag sitt til varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.

Epic Stays/Epískt gistirými Erasmus, verkefni um nýja nálgun í gistingu

Epic Stays Erasmus er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem miðar að þróun hagnýts fræðsluefnis um rekstur og hönnun svokallaðrar epískrar gistingu sem byggir á nýtingu óhefðbundinna mannvirkja og rýma. Verkefninu er stýrt af Ferðamáladeild Háskólans á Hólum í samstarfi við fræðslu- og þróunaraðila í fimm Evrópulöndum.

Nýárskveðja

Starfsfólk Háskólans á Hólum óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum við fyrir allt gott á liðnu ári. Hlökkum til ársins 2026 og það sem það mun hafa uppá að bjóða. Nýárskveðja Starfsfólk Háskólans á Hólum.