02.06.2026 | Frétt
Lára Gunndís Magnúsdóttir, kennslustjóri við Háskólann á Hólum, lét af störfum í vor eftir farsælt þriggja ára starf við skólann. Á þeim tíma gegndi hún lykilhlutverki í daglegu starfi Háskólans á Hólum og kom að fjölbreyttum verkefnum á sviði náms- og kennslumála.
01.06.2026 | Frétt
Dagana 15.–16. maí stóðu Háskólinn á Hólum og Gló stuðningsfélag fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um þjónustu með aðstoð dýra á Hólum í Hjaltadal. Ráðstefnan heppnaðist afar vel og sóttu hana þátttakendur víðs vegar að af landinu auk fjölmargra gesta frá Norðurlöndum, Evrópu og Norður-Ameríku.
29.05.2026 | Frétt
Nýlega kom út bókin Tourism and Communities: Nordic Perspectives, sem fjallar um samskipti ferðaþjónustu og samfélaga í norrænu samhengi. Meðal höfunda eru íslenskir fræðimenn, þar á meðal Laufey Haraldsdóttir, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum.
27.05.2026 | Frétt
Alls voru 24 kandidatar brautskráðir frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum við hátíðlega athöfn þann 23. maí. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir luku námi í hestafræði við skólann. Í fyrsta sinn voru jafnframt brautskráðir nemendur með sérhæft íslenskt járningamannapróf og fyrsti nemandinn lauk meistaragráðu í hestafræði frá Hólum.
27.05.2026 | Frétt
Dylan O’Hagan, nemandi í MARBIO-námi við Háskólann á Hólum, hefur hlotið rannsóknastyrk frá Líffræðifélagi Íslands og Les Amis de Jean Baptiste Charcot fyrir verkefni sem fjallar um fjölbreytni og algengi sníkjudýra í íslenskri smávaxinni botnlægri bleikju.
24.05.2026 | Frétt
Miðvikudaginn 3. júní ver Christian Klopsch doktorsritgerð sína við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Christian hefur unnið stóran hluta rannsóknarinnar á Hólum undir leiðsögn Önnu Guðrúnar Þórhallsdóttur, prófessors við Háskólann á Hólum.
23.05.2026 | Frétt
Miðvikudaginn 27. maí kl. 14:00 mun Viktor F. Aðalsteinsson verja meistararitgerð sína við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.
22.05.2026 | Frétt
Nemendur í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum tóku nýverið þátt í þriggja daga vettvangsnámi á Vestfjörðum þar sem þeir fengu dýrmæta innsýn í fjölbreytta starfsemi íslensks fiskeldisiðnaðar og tengdu saman fræði og verklega reynslu.
21.05.2026 | Frétt
Þau sem hafa sótt um nám í járningum sem hefst haustið 2026, þurfa að mæta í inntökupróf sem haldið verður á hesthússvæði Háskólans á Hólum föstudaginn 22. maí nk. kl. 09:00.
13.05.2026 | Frétt
Dagana 15.–16. maí verður haldin alþjóðleg ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra á Hólum í Hjaltadal þar sem saman koma sérfræðingar, fræðafólk og fagfólk frá Íslandi og erlendis til að fjalla um vaxandi hlutverk dýra í starfi með fólki.