18.04.2024					| Frétt
	
	
	Við sögðum nýlega frá kynningum á lokaverkefnum nemenda á 3ja ári í Hestafræðideild.
BS-námið
Nú á dögunum náðist sá áfangi að það fékkst birt fyrsta ritrýnda vísindagreinin úr einu slíku lokaverkefni sem var unnið af Sigríði Vöku Víkingsdóttur sem útskrifaðist vorið 2023 og var leiðbeinandi hennar prófessor Sveinn Ragnarsson
 
	
			
		
		
			
					17.04.2024					| Frétt
	
	
	Dagana 11. og 12. apríl var haldin lítil ráðstefna innan Hestafræðideildar Háskólans á Hólum. Þetta er ákveðin uppskeruhátíð þar sem nemendur á 3ja ári í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu koma á framfæri afrakstri af mikilli vinnu með því að kynna eigin rannsóknarverkefni í BS námskeiði.
 
	
			
		
		
			
					16.04.2024					| Frétt
	
	
	Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
 
	
			
		
		
			
					25.03.2024					| Frétt
	
	
	Forsvarsfólk helstu fiskeldisfyrirtækja landsins heimsótti Hóla á dögunum til þess að taka þátt í vinnustofu um verknám í fiskeldi. Vinnustofan var liður í norræna samstarfsverkefninu BRIDGES sem hefur það meðal annars að markmiði að efla samstarf  skóla og iðnaðar.
 
	
			
		
		
			
					25.03.2024					| Frétt
	
	
	Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum héldu í síðustu viku glæsilega ráðstefnu um stöðu viðburðastjórnunar á Íslandi.  Hátíðin var haldin á Björtuloftum í Hörpu í góðu samstarfi við starfsfólk Hörpu.
 
	
			
		
		
			
					15.03.2024					| Frétt
	
	
	Dregið var út í Hólahappi í dag. Hólahappið var skemmtilegur leikur þar sem fólk sem kom og kynnti sér Háskólan á Hólum á kynningum á Háskóladögum.
 
	
			
		
		
			
					14.03.2024					| Frétt
	
	
	Út er komin skýrsla ferðamáladeildar Háskólans á Hólum (HH) og Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála RMF) sem ber heitið Ábyrg eyjaferðaþjónusta: sjálfbær uppbygging ferðaþjónustu í Grímsey og Hrísey.
 
	
			
		
		
			
					14.03.2024					| Frétt
	
	
	Það eru endalausar leiðir til að tengjast hestum og þjálfa þá - hver verður þín?
 
	
			
		
		
			
					04.03.2024					| Frétt
	
	
	Líffræðileg fjölbreytni Norðurlanda (The Nordic Biodiversity Framework) er nýtt verkefni samstarfsvettvangsins BIODICE sem nýlega fékk styrk (um 31 mkr.) frá Norræna vinnuhópnum um líffræðilega fjölbreytni  á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.
 
	
			
		
		
			
					04.03.2024					| Frétt
	
	
	Dagana 27. og 28. febrúar var haldinn fundur á Hólum í verkefninu „Sjálfbært eldi, ræktun og nýting lagalífvera á Íslandi: Uppbygging náms og rannsókna á háskólastigi“ sem styrkt er af Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Markmið verkefnisins er að skapa tækifæri fyrir menntun og rannsóknir á sviði lagareldis á Íslandi.