27.05.2026 | Frétt
Alls voru 24 kandidatar brautskráðir frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum við hátíðlega athöfn þann 23. maí. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir luku námi í hestafræði við skólann. Í fyrsta sinn voru jafnframt brautskráðir nemendur með sérhæft íslenskt járningamannapróf og fyrsti nemandinn lauk meistaragráðu í hestafræði frá Hólum.
27.05.2026 | Frétt
Dylan O’Hagan, nemandi í MARBIO-námi við Háskólann á Hólum, hefur hlotið rannsóknastyrk frá Líffræðifélagi Íslands og Les Amis de Jean Baptiste Charcot fyrir verkefni sem fjallar um fjölbreytni og algengi sníkjudýra í íslenskri smávaxinni botnlægri bleikju.
24.05.2026 | Frétt
Miðvikudaginn 3. júní ver Christian Klopsch doktorsritgerð sína við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Christian hefur unnið stóran hluta rannsóknarinnar á Hólum undir leiðsögn Önnu Guðrúnar Þórhallsdóttur, prófessors við Háskólann á Hólum.
23.05.2026 | Frétt
Miðvikudaginn 27. maí kl. 14:00 mun Viktor F. Aðalsteinsson verja meistararitgerð sína við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.
22.05.2026 | Frétt
Nemendur í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum tóku nýverið þátt í þriggja daga vettvangsnámi á Vestfjörðum þar sem þeir fengu dýrmæta innsýn í fjölbreytta starfsemi íslensks fiskeldisiðnaðar og tengdu saman fræði og verklega reynslu.
21.05.2026 | Frétt
Þau sem hafa sótt um nám í járningum sem hefst haustið 2026, þurfa að mæta í inntökupróf sem haldið verður á hesthússvæði Háskólans á Hólum föstudaginn 22. maí nk. kl. 09:00.
13.05.2026 | Frétt
Dagana 15.–16. maí verður haldin alþjóðleg ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra á Hólum í Hjaltadal þar sem saman koma sérfræðingar, fræðafólk og fagfólk frá Íslandi og erlendis til að fjalla um vaxandi hlutverk dýra í starfi með fólki.
13.05.2026 | Frétt
Á næstu vikum fara fram brautskráningar nemenda við Háskólann á Hólum þar sem nemendur ljúka námi sínu við skólann eftir fjölbreytt og krefjandi námsár. Brautskráningarnar marka mikilvæg tímamót í lífi nemenda og eru jafnframt hátíðleg stund fyrir fjölskyldur, vini og starfsfólk skólans.
07.05.2026 | Frétt
Á morgun, 8. maí, fer fram viðburðurinn Samspil manna og dýra: Heilsa, velferð og tækifæri í alþjóðlegu samhengi í Háskóla Íslands, þar sem sérfræðingar frá Bandaríkjunum og Háskólanum á Hólum fjalla um vaxandi hlutverk dýra í heilbrigðis-, mennta- og félagsþjónustu.
07.05.2026 | Frétt
Fulbright Forum fer fram í dag, 7. maí, þar sem bandarískir Fulbright-styrkþegar kynna rannsóknir sínar og verkefni sem þau hafa unnið að á Íslandi undanfarna mánuði. Meðal fyrirlesara er Erika Berg, Fulbright-styrkþegi við Háskólann á Hólum.